Byggingar og iðnaður
|
Byggingar- og iðnaðarsvið veitir alla tæknilega ráðgjafarþjónustu við mannvirkjagerð. Útboðsgagnagerð, frumhönnun, burðarþols- hönnun, lagna- og loftræsihönnun, bruna- og hljóðtæknileg hönnun, stálhönnun, eftirlit og eftirfylgni hönnunar.
Sviðið hefur komið að hönnun burðarþols, lagna- og loftræsikerfa í öllum helstu mannvirkjum landsins. Árnastofnun - Hús íslenskra fræða, Háskólatorg Háskóla Íslands, Náttúrufræðistofnun, stækkun Ölgerðarinnar, Ráðhús Reykjavíkur svo eitthvað sé nefnt.
Markvisst er unnið að því að innleiða nýlegri tækni við hönnun mannvirkja. Sviðið hefur meðal annars tileinkað sér BIM aðferðafræðina sem er þrívið hönnun. Þróun lausna við hönnun glervirkis, klæðninga- og gluggakerfa hefur þótt standa framúr. Almenna verkfræðistofan hefur jafnframt öðlast réttindi til að veita ráðgjöf og votta vistvæna hönnun bygginga samkvæmt BREEAM kerfinu.
Áherslur og kröfur viðskiptavina til mannvirkjanna eru breytilegar er varðar verð, útlit, sveigjanleika, endingu og líftíma. Við leitumst við að uppfylla kröfur og væntingar viðskiptavina okkar.

almenna.is