Breeam

Almenna verkfræðistofan hefur öðlast réttindi til að veita ráðgjöf og votta vistvæna hönnun bygginga samkvæmt BREEAM kerfinu. 

BREEAM (Building Research Establish-ment Environmental Assessment Method) er bresk aðferð sem er ætlað að greina og draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum bygginga allt frá hönnun og byggingu þeirra til rekstrar. Aðferðin byggir á einkunnagjöf á níu sviðum sem hafa mismunandi vægi.

Hús íslenskra fræða, Árnastofnun, er meðal þeirra verkefna sem hönnuð eru útfrá Breeam kerfinu.