Umhverfismál

Almenna verkfræðistofan er umhverfislega meðvitað fyrirtæki sem leggur metnað í að reiða fram verkfræðiþekkingu sem mætir ekki eingöngu þörfum okkar í dag heldur einnig þörfum komandi framtíðar.  Almenna starfar samkvæmt vottuðu gæða- og umhverfisstjórnunarkerfi og kappkostar að vera í fararbroddi sérfræðinga á sviði umhverfis‐ og öryggismála.

Málefni umhverfisverndar eru fléttuð inn í ráðgjöf AV á öllum stigum verkefna; við hönnun, framkvæmd og rekstur. 

Markmið okkar er að veita viðskiptavinum yfirsýn og faglega ráðgjöf um val á skynsamlegum og sjálfbærum leiðum við lausn verkefna.  Auk þjónustu á hefðbundnum sviðum verkfræðinnar annast AV ráðgjöf og verkefnastjórnun í umhverfis‐ og skipulagsmálum. 

Verkefni á sviði umhverfismála:
     •
 Mat á umhverfisáhrifum framkvæmda
     • Grunnvatns- og mengunarrannsóknir
     • Alhliða jarðfræði- og umhverfisráðgjöf
     • Umhverfis- og öryggisstjórnun
     • BREEAM, Green Globe og grænt bókhald
     • Skipulagsáætlanir og umhverfismat áætlana
     • Dælu- og hreinsistöðvar

Öll skipulags‐ og matsvinna miðar að því að ná fram hagkvæmri nýtingu lands, orku, vatns og annarra náttúruauðlinda.   Við höfum ávallt í huga áhrif ákvarðana okkar á náttúru og umhverfi.