Orka og veitur

Sviðsstjóri
Ársæll Aðalsteinsson
arsaellalmenna.is

Allt frá stofnun hefur Almenna verkfræðistofan veitt víðtæka ráðgjöf á sviði orku- og veitumála. Orku- og veitusvið býr yfir reynslu og tækjabúnaði til að takast á við flókin og margþætt verkefni allt frá hagkvæmnismati framkvæmda til fullnaðarhönnunar og aðstoðar við innkaup á tæknibúnaði.

Undirbúningur og hönnun veitu- og orkumannvirkja krefjast ítarlegra rannsókna, t.d. er snúa að jarð- og bergtæknilegum eiginleikum í umhverfi mannvirkja, vatnamælingum og grunnvatnsstöðu.   Auk framangreinds býr Almenna verkfræðistofan yfir víðtækri þekkingu á sviði mannvirkja- og stífluhönnunar, vélhönnunar, verkefnastjórnunar og eftirlits með framkvæmdum.