Hafnir
Hafnargerð er margbrotið og flókið viðfangsefni þar sem tekist er á við flestar greinar verk- fræðinnar.
Við hönnun og skipulag mannvirkja við strendur landsins þarf að taka tillit til fjölda þátta sem hafa áhrif á einn eða annan hátt. Hönnun og skipulag þarf að vera í sátt við umhverfið og náttúruna því samspil mannvirkja og sjávar geta verið víðsjárverð.
Taka þarf tillit til náttúrunnar, þ.e. öldufars, mismun á flóð og fjöru, veðráttu og ísmyndunar einnig þarf að huga að umferðarmálum, jarðtæknilegum aðstæðum, skipulagsmálum, umhverfis-málum og samspili við núverandi mannvirki og byggðar.
Þegar hugað er að skipulagningu hönnunar við hafnargerð þurfa að liggja fyrir upplýsingar um hegðun öldunnar, ölduhæðir, öldustefnu sem nota má við ákvörðun á hagstæðustu legu brimvarnargarða sem verja eiga hafnarbakka, landsvæði eða mannvirki, gera þarf ítarlegar jarðvegsrannsóknir og annað er snýr að öflun grunn upplýsinga.
Almenna verkfræðistofan hefur áratuga reynslu í skipulagi, rannsóknum og hönnun hafnarmannvirkja. Hópur sérfræðinga, með fjölbreyttan bakgrunn sinnir reglulega verkefnum sem tengjast hafnargerð.
Nánari upplýsingar veita
Einar Helgason eða Egill Viðarsson
almenna.is