Jarðfræði- og umhverfisráðgjöf

Almenna verkfræðistofan býður fram víðtæka jarðfræðiþjónustu.  Starfsmenn eiga að baki áratuga reynslu við forathuganir, jarðfræðikortlagningu og rannsóknir tengdar mannvirkjagerð, bæði hvað varðar berggrunn og laus jarðlög. 

Sem dæmi um verkefni á þessu sviði má nefna virkjanir í neðri Þjórsá, Hólmsá og Skaftá ásamt jarðfræðikortum af Henglinum og Tungnaáröræfum.