Mat á umhverfisáhrifum

Mat á umhverfisáhrifum er gert til að fá heildarsýn yfir þau áhrif á náttúru, samfélag og efnahag sem ákveðin framkvæmd getur haft í för með sér.

Almenna verkfræðistofan er vel í stakk búin til að vinna mat á umhverfisáhrifum hvers konar framkvæmda enda búa starfsmenn stofunnar yfir þekkingu á breiðum grunni, sem er nauðsynleg við slíka vinnu. Innan veggja stofunnar er víðtæk þekking meðal annars á sviði kortagerðar, líffræði, jarðfræði, vatnafræði, grunnvatnsfræði og mengunarmála ásamt og skipulags- og umferðarmála. 

Starfsmenn AV hafa staðgóða þekkingu á landsháttum víðast um landið og ekki síst til fjalla.