Grunnvatns- og mengunarrannssóknir

Starfsmenn Almennu verkfræðistofunnar hafa um árabil stundað rannsóknir á grunnvatni víða um land.  Rannsóknir á Reykjanesi,  Tungnaáröræfum, neðri hluta Þjórsár, Ölfusi og við Skaftá ber hæst.  

Rannsóknir á mengun eru öðrum þræði grunnvatnsrannsókn.  Rannsóknir á mengun hafa einkum beinst að olíumengun og PCB-mengun á Keflavíkurflugvelli vegna brottfarar Bandaríkjamanna og rannsókn á mengun við slippinn í Reykjavíkurhöfn og við olíuafgreiðslustöð í Laugarnesi.