Tjónamat

Tjónamat felst í mati og skoðun á hverskonar tjóni eða skaða sem orðið hefur á byggingum eða öðrum mannvirkjum. 

Matið felst í tjónaskoðun, skráningu og myndun á tjónstað, greiningu á eðli skemmda, umfangi viðgerða, ákvörðun um tjónsfjárhæðar og samningum við tjónþola.

Tjónamat vegna náttúruhamfara eru algengustu og umfangsmestu verkefni á sviði tjónamats sem Almenna verkfræðistofan hefur annast. Um er að ræða tjón af völdum jarðskjálfta, sjávarflóða, aurskriða og jökulhlaupa. Mat á tjónum vegna náttúruhamfara eru unnin fyrir Viðlagatryggingu Íslands.

Sérfræðingar Almennu verkfræðistofunnar meta vatns- og brunatjón í fyrirtækjum og hjá einstaklingum ýmist í samstarfi við tryggingarfélög eða einstaklinga.

Tjónamat er framkvæmt í samræmi við vottaða verkferla sem tryggja rekjanleika og áreiðanleika matsins.