Viðhald og ástandsmat mannvirkja
Til að viðhalda verðmæti fasteigna er lykilatriði að hafa yfirsýn yfir ástand eignarinnar og tryggja reglulegt viðhald þegar þess er þörf. Almenna verkfræðistofan hf. (AV) býður upp á ráðgjöf í viðhaldsverkefnum á öllum stigum framkvæmda, allt frá greiningu á viðhaldsþörf til úttektar við lok verks.
Á nærri 40 árum hefur AV veitt húseigendum ráðgjöf í fjölmörgum viðhaldsverkefnum og spannar reynslan verkefni af öllum stærðum og gerðum, víðsvegar á landinu. Við ráðgjöf sína notar AV ISO 9001 vottað verklag fyrir umsjón og eftirlit með viðhaldi mannvirkja.
Þjónusta
Fyrsta skrefið fyrir húseigendur þegar leggja skal af stað í viðhaldsaðgerðir er að láta meta ástand húsnæðis og greina viðhaldsþörf þess. AV býður upp á svokallaða forathugun þar sem viðhaldsverkefnum er forgangsraðað og kostnaður vegna þeirra er áætlaður. Með þessu móti er húseigendum gert kleift að öðlast yfirsýn yfir umfang viðhaldsaðgerða og húsfélög geta tekið ákvarðanir um viðhaldsframkvæmdir.
Sækja kynningarblað (pdf)
Nánari upplýsingar
Ragnar Ómarsson, rom@almenna.is
Sími: 580 8108 / 894 8604
almenna.is